Svæðið umhverfis Hreðavatn er mikið notað sem útivistarsvæði. Eigendur jarðarinnar Hreðavatns vilja benda á nokkur atriði sem fólk þarf að hafa í huga í umgengni við landið.
Öll umferð vélknúinna ökutækja er stranglega bönnuð utan vega og óskráð ökutæki eru alveg bönnuð. Vegna sumarhúsabyggðar og mikillar umferðar gangandi vegfarenda á svæðinu er farið fram á að hundar gangi ekki lausir og að hirt sé upp eftir þá.
Öll umferð báta á vatninu fyrir landi Hreðavatns er háð leyfi landeigenda og notkun mótorbáta er alveg bönnuð. Veiði í vatninu er jafnframt háð leyfi landeigenda og eru veiðileyfi fyrir landi Hreðavatns seld í Hreðavatnsskála og Munaðarnesi yfir sumartímann.
Öll meðferð skotvopna er óheimil í landi Hreðavatns.
Hvers konar nýting jarðarinnar til samkomuhalds og þess háttar er alfarið háð samkomulagi við jarðeigendur.
Nánari upplýsingar veita Birgir Hauksson í Tröð í síma 893 3229 og Davíð Magnússon á Hvassafelli í síma 864 0043.