Markmið ML náms í lögfræði er að veita nemendum trausta, fræðilega þekkingu á sviði lögfræði með áherslu á þjálfun fræðilegra og hagnýtra þátta sem snúa að lögmannsstörfum og almennum ráðgjafar- og lögfræðistörfum.
Námið er krefjandi og sérstök áhersla er á lögfræðilega aðferðarfræði og beitingu réttarheimilda. Einnig er lögð áhersla á greinar á sviði réttarfars og refsiréttar auk ýmissa greina fjármunaréttar. Þá er ennfremur boðið upp á styttri námskeið í réttarsögu, sifjarétti auk valgreina. Nemendur eru einnig þjálfaðir í málflutningi fyrir dómi.
Námið er sniðið að þörfum nemenda sem lokið hafa grunnámi í viðskiptalögfræði en vilja hasla sér völl á hefðbundnum starfsvettvangi lögfræðinga. Að loknu meistaranámi hafa nemendur sem einnig hafa lokið BS gráðu í viðskiptalögfræði rétt á að þreyta prófraun til að öðlast lögmannsréttindi og hefur talsverður hluti meistaranema við skólann farið þá leið.
Framvinda og námslok
Meistaranám er kennt í staðnámi og er að jafnaði kennt allt árið en nemendur fá um það bil tveggja mánaða sumarleyfi. Námskeið á vetrarönnum eru ýmist í 7 vikur eða 14 vikur en á sumrin er að jafnaði kennt í lotum. Námsmat er ýmist í formi verkefna og/eða lokaprófa. Nánari upplýsingar um kennsluaðferðir og námsmat er að finna í námskeiðslýsingu hvers námskeiðs. Námið er samtals 120 ECTS og nemendur geta lokið því á tveimur árum.
Inntökuskilyrði
1. Nemendur sem hafa lokið BS gráðu í viðskiptalögfræði, þar af 120 ETCS einingum í lögfræði, eða sambærilegu prófi, uppfylla skilyrði til að hefja ML nám við Háskólann á Bifröst. ML nám að lokinni BS gráðu í viðskiptalögfræði eða sambærilegu prófi, telst fullnaðarnám í lögfræði. Uppfylla nemendur að útskrift lokinni almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda sbr. 4. tl. 1. mgr. 6 gr. laga nr. 77/1998.
2. Nemendur sem lokið hafa grunnháskólagráðu (bakkalár) eða jafngildi hennar geta sótt um ML nám í lögfræði. Við mat á umsókn er litið til fyrri grunngráðu og námsárangurs. Skilyrði er að umsækjandi hafi lokið námskeiðinu Almenn lögfræði I sem kennt er við Háskólann á Bifröst eða sambærilegu námskeiði. Í reglum sem fagráð setur má kveða um að nemendur skuli á námstímanum ljúka öðrum tilteknum námskeiðum í grunnnámi sem fela í sér forkröfur námskeiða í ML náminu. Nemandi fær nám á grunnstigi ekki metið til námseininga í meistaranámi. Nemendur sem ljúka ML námi og hafa aðra grunnháskólagráðu en BS í viðskiptalögfræði eða sambærilegt próf, teljast ekki hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði sbr. 4. tl. 1. mgr. 6 gr. laga nr. 77/1998.
Umsóknarfrestur
Inntaka í meistaranám er í janúar ár hvert og skulu umsóknir hafa borist eigi síðar en 5. desember. Nemendur geta sótt um að hefja nám á öðrum tíma ársins.
Sviðsstjóri lögfræðisviðs er Helga Kristín Auðunsdóttir, helgakristin@bifrost.is
Umsjónarmaður meistaranáms: Brynjar Þór Þorsteinsson, brynjar.thorsteinsson@bifrost.is