Menningarfræði MA

Gagnrýnin samfélagsgreining

Menningarfræði er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst og útskrifast nemendur með sameiginlega gráðu beggja skóla.
Í menningarfræði er helstu kenningum samtímans á sviði hug- og félagsvísinda stillt saman í tilraun til að byggja upp gagnrýna sýn á samfélag og menningu. Námið er sérstaklega ætlað nemendum með traustan bakgrunn á sviði hug- eða félagsvísinda sem hyggjast annaðhvort búa sig betur undir frekara nám á sínu sérsviði eða efla fræðilega þekkingu sína og kunnáttu til að geta betur tekist á við krefjandi störf í samfélaginu. Í menningarfræði hefur nemendum gefist kostur á að kanna birtingarmyndir menningar hvarvetna í samfélaginu á fræðilegan hátt, án þess þó að vera bundnir einu afmörkuðu fræðasviði. Námsgreinin hefur leitast við að draga fram þau tengsl sem eru á milli ýmissa þátta nútímalífs, s.s. stjórnmála, borgarlífs og náttúruhugmynda, hugmyndafræði, valds og kynjahlutverka, þjóðernis og alþjóðamenningar, bókmennta, lista og afþreyingar, menningararfs, menntastefnu og fjölmenningar, fjölmiðla, fagurfræði og andófs. Í nýja náminu verður áhersla lögð á greiningu og gagnrýni og námskeið skipulögð með þeim hætti að verk höfunda á þessu sviði séu nýtt til skilnings á menningu og samfélagi samtímans.

 

Sérstaða

Samstarf háskólanna tveggja er nýjung í íslensku háskólasamfélagi og gerir nemendum kleift að nýta sér það besta úr báðum stofnunum. Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi.

 

Framvinda og námslok

Námið hefst og því lýkur með sumarnámi á Bifröst, 4 vikum fyrra sumarið, 6 vikum síðara sumarið. Lokverkefni er skilað í lok síðari sumarannar. Haust- og vorannir stunda nemendur nám við Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir að nemendur ljúki fullu 90 eininga námi, þar á meðal 30 eininga ritgerð á einu ári. Háskólinn á Bifröst tekur skólagjöld fyrir þann hluta námsins sem hann sér um, en Háskóli Íslands tekur einungis skráningargjöld fyrir sinn hluta námsins. Skólagjöld eru lánshæf samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Náminu er skipt þannig að 44 ECTS einingar eru í námskeiðum á vegum Háskóla Íslands, en 46 einingar á vegum Háskólans á Bifröst og miðast skólagjöld við það. Háskólinn á Bifröst sér um skráningu í námið og stendur skil á skráningargjöldum til Háskóla Íslands.

 

Umsjón með náminu: Jón Ólafsson, jonolafs@bifrost.is og Benedikt Hjartarson, benedihj@hi.is
Umsjónarmaður meistaranáms: Brynjar Þór Þorsteinsson, brynjar.thorsteinsson@bifrost.is

    

Skipulag náms til MA gráðu í menningarfræði 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri