Símenntun Háskólans á Bifröst

 

Máttur kvenna

  

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna  er 3ja mánaða námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Um 700 konur hafa lokið þessu námi. 

Máttur kvenna I hefst næst 24.-25. febrúar 2012.

 

Máttur kvenna II er einnig í boði á vorönn 2012 og hefst á sama tíma.

 

Útskriftarhópur í Mætti kvenna vorið 2011

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Diplómanám í verslunarstjórnun

 

Háskólinn á Bifröst býður upp á diplómanám í verslunarstjórnun. Um er að ræða tveggja ára starfstengt nám sem fram fer að mestu með fjarnámi. Markmið námsins er að auka hæfni og þekkingu starfsfólks sem vinnur við verslun og þjónustu. Að námi loknu útskrifast nemendur með diplómapróf í verslunarstjórnun. Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks veitir félagsmönnum VR 75% styrk fyrir skólagjöldum.

120 nemendur hafa lokið diplómanámi í verslunarstjórnun. 

Nýr hópur nemenda hefur nám í janáur 2012.

 

Ummæli nemanda í diplómanámi í verslunarstjórnun

 

 

 

Rekstur smærri fyrirtækja - RSF

 

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám fyrir rekstraraðila smærri fyrirtækja.

RSF er nám sem þú getur stundað með vinnu og þannig bætt þekkingu þína. Námið nýtist frá fyrsta degi í rekstri fyrirtækis þíns. 

 

 

Ummæli nemanda í rekstri smærri fyrirtækja

 

 

Verkefnastjóri símenntunar við Háskólann á Bifröst er Geirlaug Jóhannsdóttir.


 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri