Á kennslusviði starfa auk sviðsstjóra umsjónarmenn kennslukerfa, meistaranáms, frumgreinadeildar, fjarnáms í grunnnámi og prófa. Upplýsingar um nemendur eru á ábyrgð kennslusviðs; námsferill, skráningar í og úr námskeiðum og skráning einkunna. Háskólinn á Bifröst notar skráningarkerfið MySchool.
Kennslusvið annast innritun og útskrift og hefur umsjón með dagskrá skólaársins, stundatöflugerð, skiptingu í hópa og stofuskipan. Prófstjóri hefur yfirumsjón með próftöflugerð og framkvæmd prófa. Próftöflur eru birtar á vef skólans fyrir upphaf prófa en tími lokaprófa kemur fram í dagskrá hvers skólaárs fyrir sig. Prófsýning fer fram tveimur vikum eftir lok prófa.
MySchool er rafrænt námsumhverfi nemenda og kennara. Kennarar koma námsefni fyrir á vefnum, leggja þar fram ítarefni og verkefni og skila þeim og veita endurgjöf í gegnum hann. Á MySchool má finna ýmsar upplýsingar á borð við kennsluáætlanir og tilkynningar ýmiss konar, spjallþræði í einstaka námsgreinum og fleira.
Formlegar útskriftir frá Háskólanum á Bifröst fara fram í febrúar, júní og september ár hvert. Skráning í útskrift fer fram með rafrænum hætti og er send tilkynning þar að lútandi til nemenda. Prófskírteini eru á íslensku og ensku.