Tölvuþjónusta

Skráðu þig inn með sama notandanafni og þú gerir inn á innranetið.

Notandanafn
Lykilorð

 

Á Bifröst eru send út fjögur þráðlaus net á vegum skólans.

Hægt er að tengjast þessum netum á Kaffi Bifröst og í skóla- og bókasafnshúsnæðinu .

                       

 

  1. Gestir (Guest) er opið öllum. Það gefur takmarkað aðgengi að internetinu, en engan aðgang að staðarneti (innra neti) skólans. Þetta net er maðal annars notað til þess að komast í netsamband og skrá Mac addressur nemenda.
  2. Nemendur (Students), er opið öllum sem hafa skráð svokallaðar Mac addressur (Physical address) í tölvum sínum í gegnum innskráningarsíðuna hér fyrir ofan (sjá “Hvernig skal skrá tölvur” hér til hliðar). Nemendanetið gefur ótakmarkaðan aðgang að internetinu og notendastýrðan aðgang að innra neti skólans
  3. Staff (Starfsmannanetið) er aðgangsstýrt net ætlað starfsmönnum skólans. Umferð um þetta net er dulkóðuð, og gefur ótakmarkaðan aðgang að internetinu og einnig notendastýrðan aðgang að innra neti skólans.
  4. Eduroam ( http://www.eduroam.org/ ) er þráðlaust net, ætlað nemendum og starfsmönnum háskóla um allan heim,  og sem hafa innleitt Eduroam. Nemendur eða starfsmenn sem koma frá öðrum háskólum, sem hafa innleitt Eduroam kerfið, geta skráð sig inná þetta net með notendanöfnum og lykilorðum frá sínum skóla. þ.e.a.s. nemendur og starfsmenn HÍ geta t.d. skráð sig inná þráðlausa netið Eduroam þegar þeir koma uppá Bifröst og sama gildir um nemendur og starfsmenn Háskólans á Bifröst þegar þeir koma til Háskóla Íslands. Vinsamlegast athugið að þarf að skrá sig inn með notendanafni@domain.xxx (ekki netfangi), t.d. notandi@bifrost.is

 

 

Vinsamlegast veldu Gestanetið og skráðu þig inn á vefsíðu tölvuþjónustunnar hér fyrir ofan til þess að skrá Mac addressur tölvunnar þinnar. Þegar skráningu er lokið, þá þarf að bíða fram yfir næstu heilu klukkustund, en eftir það er hægt að nota þráðlausa netið "Nemendur".

 

ATH.

Það er hægt að skrá Mac addressuna hvaðan sem er í heiminum (svo framarlega sem viðkomandi er í tölvusambandi), og tengjast síðan Nemendanetinu þegar komið er á staðinn.

 

Nemendaþjónusta

 

hjalp@bifrost.is

https://hjalp.bifrost.is

 

Netstjóri

Sigurður Kristófersson sér um netkerfi skólans, nemenda- og prentaraþjónustu.

 

netstjori@bifrost.is

S: 433 3029

 

MySchool

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri