19. júní 2009
Lægsta leiga á stúdentagörðum á landinu - Háskólinn á Bifröst lækkar leigu um 20%
 |
| Úr háskólaþorpinu á Bifröst |
Tilkynnt hefur verið um 20% lækkun húsaleigu á nemendagörðum Háskólans á Bifröst frá 1. ágúst nk.
Leiguverð í háskólaþorpinu á Bifröst er nú hið lægsta á landinu samanborið við aðra stúdentagarða.
Sem dæmi um mánaðarlega húsaleigu á Bifröst má nefna: Einstaklingsherbergi frá 17 þús, stúdíóíbúðir frá 46 þús, 2 herbergja íbúðir frá 50 þús, 3 herbergja íbúðir frá 69 þús. og 4 herbergja íbúðir frá 81 þús. Innifalið í leiguverði er rafmagn, hiti, hússjóður, nettenging og aðgengi að 13 sjónvarpsstöðvum.
Háskólinn á Bifröst mætir með þessum hætti þörfum núverandi og væntanlegra námsmanna fyrir góða menntun í frábæru umhverfi.
Frá því í nóvember 2008 hefur leiga í háskólaþorpinu á Bifröst lækkað um u.þ.b. 35% að raunvirði.