Gæðamál

 

Í Háskólanum á Bifröst er virkt gæðaeftirlit. Háskólaráð kýs gæðaráð á fyrsta fundi sínum ár hvert. Í því sitja þrír fulltrúar nemenda, kjörnir af nemendum og þrír fulltrúar kennara tilnefndir af kennarafundi, ásamt formanni sem tilnefndur er af rektor. Jafnframt starfar gæðastjóri með ráðinu, skipuleggur fundi þess í samráði við formann og ritar fundargerðir þess.

 

Gæðaráð ásamt gæðastjóra ber ábyrgð á gæðastjórnun háskólans gagnvart rektor og háskólaráði og skal tryggja að skólinn starfi í samræmi við eigin og ytri reglur.

 

Gæðastjóri í samráði við gæðaráð gerir kennslumat og leggur niðurstöður þess fyrir kennara, fagráð og háskólaráð til kynningar.

 

Gæðaráð skilar rektor og háskólaráði árlega skýrslu um störf sín og gæðamál skólans.

 

Formaður gæðaráðs er Jón Freyr Jóhannsson. Signý Óskarsdóttir, gæðastjóri, starfar með gæðaráði. Fulltrúar nemenda í gæðaráði eru; Berglind Ósk Gísladóttir, Egill Örn Magnússon og Ingi Eggert Ásbjarnarson. Fulltrúar kennara eru; Kári Joensen, Maj Britt Hjördís Briem og Þórir Páll Guðjónsson.

 

Gæðaráð semur reglur um gæðastaðla, sinnir gæðaeftirliti og ber ábyrgð á gæðamati og gæðastjórnun. Það endurskoðar gæðahandbók háskólans og gefur út árlega skýrslu um gæðamál.

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri