Sjálfbærni og samfélagsábyrgð

Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð á Bifröst 

Leiðtogar framtíðarinnar munu standa frammi fyrir áskorunum á borð við alvarlega umhverfisvá sem fylgir vaxandi velmegun í heiminum og það er mikilvægt fyrir framtíð alls mannkyns að þeir taki á slíkum viðfangsefnum af ábyrgð og virðingu fyrir framtíð komandi kynslóða. Háskólar gegna hér lykilhlutverki, þeir mennta forystufólk í viðskiptalífi, í stjórnmálum og í vísindum og eigi það markmið að takast að innleiða hugsun sjálfbærni og samfélagsábyrgðar inn í framtíðarstefnumótun, þá þurfa háskólarnir að vera í broddi þeirrar fylkingar. Menningarmálastofnun Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO) hefur tilnefnt áratuginn 2005-2014 áratug menntunar til sjálfbærrar þróunar en markmiðið með því er að tvinna lögmál, gildi og viðhorf sjálfbærrar þróunar inn í alla kennslu og starfsemi menntastofnanna og auka þannig vitund og skilning skólasamfélagsins á sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð. Háskólinn á Bifröst hyggst taka þeirri áskorun sem í þessu felst og hefur sett sér það markmið að aðlaga hugmyndafræði sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar að rekstri og starfsemi skólans og taka þannig virkan þátt í að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru á leiðtogamenntun framtíðarkynslóða. Stefna skólans er í endurskoðun með þessi markmið að leiðarljósi og verður ný stefna kynnt í marsmánuði 2012.

 

Hvernig menntum við ábyrga leiðtoga?

Háskólar um allan heim hafa eftir að efnhagskreppan skall á verið gagnrýndir fyrir það að hafa útskrifað fólk sem hafi fyrst og fremst haft gróðahyggju og skammsýni að leiðarljósi en látið hjá liggja að kenna nemendum sínum þætti á borð við siðfræði, góða stjórnarhætti, samfélagsábyrgð og virðingu fyrir umhverfi og hagsmunum heildarinnar. Í tengslum við áratug SÞ um menntun til sjálfbærrar þróunar hefur verið komið á fót sameiginlegu átaki þeirra menntastofnana sem vilja taka áskorun áratugarins og mennta ábyrga leiðtoga (PRME – Principles for responsible management education), en Háskólinn á Bifröst er fyrstur íslenskra háskóla til að undirrita viljayfirlýsingu PRME. Átakið er runnið undan rifjum Sameinuðu þjóðanna í tengslum við alþjóðasáttmálann um sjálfbæra þróun (UN Global Compact) en markmið hans er að fyrirtæki og stofnanir lagi rekstur sinn að alþjóðlegum samþykktum um mannréttindi, vinnuafl, umhverfisvernd og gott siðferði. Tilgangur átaksins um menntun ábyrgra leiðtoga er að stuðla að leiðtogaþróun sem hefur hagsmuni heildarinnar og framtíðarkynslóða að leiðarljósi. Átakið styður þannig menntastofnanir til að aðlaga kennsluskrá sína, rannsóknir, kennsluaðferðir og daglega starfsemi að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar á kerfisbundinn hátt.

 

Sex markmið til menntunar ábyrgra leiðtoga

Átakið til menntunar ábyrgra leiðtoga byggir á 6 markmiðum sem þátttakendur í átakinu skuldbinda sig til að vinna að til að. Við Háskólann á Bifröst er nú unnið markvisst að innleiðingu markmiðanna og hefur verið ráðinn sérstakur starfsmaður á skrifstofu rektors til að fylgja þeim eftir.

Markmiðin eru þessi:

 

1. Tilgangur –Við munum leitast við að efla færni nemenda okkar sem komandi kynslóða leiðtoga til að vinna að sjálfbæru hagkerfi í heiminum.

 

2. Gildi – Við munum leitast við að endurspegla hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og samfélagsábyrgðar í námsskrá, námsefni og kennslufræði skólans.

 

3. Aðferðir –Við munum bjóða upp á námsefni, kennsluaðferðir og aðstæður í háskólanum sem gera nemendum kleyft að efla færni sína sem ábyrgir stjórnendur.

 

4. Rannsóknir –Við munum leggja áherslu á að stunda við háskólann rannsóknir sem auka skilning okkar á hlutverki og mögulegum áhrifum fyrirtækja á þróun félagslegra, umhverfislegra og efnahagslegra gilda.

 

5. Samvinna við fyrirtæki –Við munum leita eftir virku samstarfi við stjórnendur fyrirtækja til þess að auka skilning okkar á þeim samfélagslegu og umhverfislegu áskorunum sem fyrirtækin standa frammi fyrir og að þróa í samstarfi við þau árangursríkar leiðir til að takast á við þær áskoranir.

 

6. Umræða –Við munum standa fyrir gagnrýnni umræðu á meðal kennara, nemenda, fyrirtækja, stjórnvalda, fjölmiðla og annarra áhugasamra hagsmunahópa í samfélaginu um sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

 

Samfélagsleg gildi í háskólaþorpinu

Lífsmynstrið sem nemendur tileinka sér á háskólaárunum getur haft mikil áhrif á það hvernig einstaklingum líður á Bifröst sem og árangur í námi og því er hvatt til almennrar heilsueflingar, hreyfingar, umhverfisvitundar og samfélagslegrar samstöðu í háskólaþorpinu. Við Háskólann á Bifröst hlýtur nemandi því almenna samfélagsþjálfun samhliða leiðtogamenntun en einnig er lagt mikið upp úr því að hlúa að öðrum íbúum þorpsins. Íbúum er boðið upp á fría líkamsrækt í vel búnum tækjasal auk þess sem staðið er fyrir ýmsum námskeiðum í hreyfingu. Jóga- og hugleiðslusetur hefur verið stofnað við skólann en slíkar aðferðir hafa gefist vel til að ná tökum á prófkvíða og streitu. Fjallaklúbbur Bifrastar fór af stað árið 2011 og fór fjöldi manns í göngur með klúbbnum á nærliggjandi fjöll en auk þess hefur Gönguklúbburinn Gaui haldið úti vikulegum styttri göngum á svæðinu. Þá hefur starfsemin á Kaffi Bifröst verið tekin í gegn með hollustu og huggulegheit að leiðarljósi, undir styrkri handleiðslu Helgu Mogensen heilsukokks. Mikil áhersla er lögð á samhygð og félagslega samstöðu á Bifröst og í því skyni hefur m.a. verið stofnað Smávinafélag sem leitar uppi nemendur sem kunna að þurfa stuðning eða aðstoð. Þá eru starfræktir ýmis konar klúbbar á svæðinu svo sem AA, stjórnmálafélög og Séntilmannaklúbbur svo eitthvað sé nefnt. Einnig hafa mömmumorgnar verið haldnir á Kaffi Bifröst fyrir mæður ungbarna sem búa á svæðinu. Hér hefur aðeins hluti af því samfélagslega neti sem boðið er upp á í háskólaþorpinu á Bifröst verið kynnt til sögunnar, en markmið okkar er að því fólki sem býr á Bifröst líði vel, hvort sem það eru nemendur, starfsfólk, makar eða þau fjölmörgu börn sem búa á svæðinu.

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri