8. september 2007

 

 

Ræða dr. Ágústar Einarssonar, rektors, við útskrift 8. september 2007

 

Góðir stúdentar og aðrir áheyrendur

 

Allt á sér upphaf og endi.

 Það á við skólagöngu en einnig lífið sjálft. Maðurinn hefur náð valdi á mörgu en hann ræður ekki tímanum. Í hverjum sólarhring eru 24 klukkustundir og það breytist ekki. Ævin er að meðaltali um 75 ár og það breytist ekki mikið úr þessu. Þið, ágætu útskriftarnemar, eru búin með hluta ævinnar, ef til þann skemmtilegasta, en þá eru minningarnar eftir og þær eru dýrmætar, ekki síst þær héðan frá Háskólanum á Bifröst.

 

Steinn Steinarr sagði í kvæðinu Tímanum og vatnið:

 

Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.

Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

 

Fyrsta bók okkar flestra hét Gagn og gaman og það er eins konar stef hér á Bifröst, það að hafa gagn af dvölinni en einnig gaman. Vonandi tókst ykkur þetta og nú fljúgið þið frá okkur, sum í meira nám, önnur í vinnu sem fékkst í sumar, mörg með fjölskyldu sem stækkaði hér á Bifröst en öll með árangur, árangur sem kemur fram í skírteininu sem þið fenguð í dag.

 

Það er hægt að taka af ykkur allt, heilsuna, fjármunina, fjölskylduna, vinina og mannorðið en það er ekki hægt að taka af ykkur menntunina. Hún er innan í ykkur, stundum þinglesin með útskrift eins og í dag en oftast er menntunin óskráð eign ykkar sem hjálpar ykkur að lifa betra lífi og fylla vel út í þann takmarkaða tíma sem þið fáið hér á jörðinni.

 

Við í Háskólanum á Bifröst erum ánægð með núverandi tíma, hvað svo sem verður eða var. Nú eru um 1.100 nemendur í skólanum og hafa aldrei verið fleiri. 900 manns sóttu um skólavist í sumar og við tókum inn 600. Það er grátlegt að vísa frá fólki sem vill læra. Við stofnuðum útibú á Austfjörðum og á Vestfjörðum í sumar og á þeim stutta tíma sem við höfðum komu nokkrir nemendur sem hefðu ella ekki farið í skóla. Það er nóg fyrir mig. Hver sá sem kemur í skóla og sækir sér menntun er sáluhólpinn í skilningi okkar skólamanna.

 

Í skólum fást tækifæri, oft ný tækifæri eins og hér á Bifröst. Hvernig fólk fer svo með menntunina verða það að ráða sjálft en við reynum að kenna nemendum að skilja að menntun er ekkert annað en góð leið til að bæta líf sitt og annarra. Stundum gerist það með hærri launum, stundum með meiri víðsýni og stundum með meiri sálarró og vellíðan.

 

Meiri menntun er einfaldlega besta leiðin fyrir milljarða manna sem þurfa að þola hungur og örbirgð. Gleymum aldrei að við höfum það gott, betra en nær allir á jörðinni. Þakklæti og umburðarlyndi er þó ekki meðal sterkustu eiginleika okkar Íslendinga. Reynið þið, kæru Bifrestingar, að tileinka ykkur þakklæti og umburðarlyndi.

 

Við reynum hér á Bifröst að miðla menntun á sérhæfðum sviðum félagsvísinda, menntun sem undirbýr ykkur m.a. fyrir nýja atvinnuvegi framtíðarinnar, skapandi atvinnuvegi, sem byggjast á menningu og þekkingu á öðrum þjóðum og því að vinna með öðrum.

 

Það er ekki tilviljun að á Bifröst er unnið í litlum hópum, gerð fjölmörg verkefni, farið mikið í nám erlendis og líf og nám er ein samfella í stærsta háskólasamfélagi á Íslandi, skólasamfélagi sem verður 90 ára á næsta ári. Við erum stolt af fortíðinni, stolt af forverum okkar, stolt af þeirri hugmyndafræði að frá Bifröst skuli koma forystufólk til framfara fyrir land okkar og þjóð. Við höfum mikinn metnað hér á Bifröst.

 

Fjölbreytni skólastarfs á öllum skólastigum er lykill að góðum lífskjörum. Borgarfjörður hefur breyst úr landbúnaðarsamfélagi í skólasamfélag. Hér eru leikskólar í háum gæðaflokki, góðir grunnskólar, tveir háskólar og nýr menntaskóli. Hið borgfirska líkan er með gott skólakerfi sem undirstöðu fyrir gott samfélag, þar sem fólki líður vel, hefur góð laun og býður börnum sínum upp á góð tækifæri.

 

Borgfirðingar telja, samkvæmt skoðanakönnunum, að það sé jafn góður aðgangur hér að menningarlegum viðburðum og höfuðborgarbúum finnst. Þessu höfum við náð en einmitt skortur á aðgengi að menningarlegri fjölbreytni hefur valdið fólksflótta víða um land. Það er ekki hér í Borgarfirði. Hér er menningin í miklum blóma, þökk sé skólunum. Það er í gegnum aukna menntun og meiri menningarstarfsemi sem við tengjum landið saman í eina heild. Háskólakeðjan, hugtakið sem kom frá Bifröst verður almannastefna á nokkrum misserum og borgfirska líkanið verður vegvísir fyrir önnur sveitarfélög.

 

Það eiga allir að koma að skólastarfi með þátttöku og fjármögnun. Það er ekki aðeins verkefni opinberra aðila og nemenda sjálfra heldur eiga einstaklingar og fyrirtæki að leggja af mörkum til að efla skólastarf. Fyrirtæki og einstaklingar hafa stóraukið framlög sín til menningarmála á undanförnum árum og það er vel en þeir eiga að koma sterkar inn til stuðnings skólum því þar er uppspretta fólksins sem eykur hag þeirra á komandi árum.

 

Það vantar hérlendis á þá góðu hefð sem er víða erlendis að fyrirtæki og einstaklingar styrki skóla með myndarlegum hætti. Það mætti breyta skattalögum til að örva slíkt en fyrst og fremst þarf að verða hugarfarsbreyting hjá atvinnulífinu um hversu mikilvægt það er að skólakerfið sé í fremstu röð og það sé skylda þeirra, ávinningur og heiður að efla það með fjárframlögum. Við á Bifröst njótum velvildar margra fyrirtækja og erum þakklát fyrir það en við viljum að allt atvinnulífið gerir sér grein fyrir hversu mikilvægt það er að styðja við skólastarf.

 

Eitt sinn var ég að þakka Gunnari Björgvinssyni, athafnamanni sem býr í Liechtenstein, fyrir framlag hans til háskóla hérlendis. Gunnar er einn auðugastur Íslendinga en berst ekki á og er hógvær heiðursmaður. Hann sagði þegar ég var að þakka honum: „Ágúst, vertu ekki að þakka mér. Ég er aðeins að gefa smávegis til baka af því mikla sem ég naut þegar gekk í skóla sem barn og unglingur. Það gerði mig að því sem ég er“. Fleira sagði hann ekki um þetta og þetta eru viðhorf sem mér líkar og fleiri mættu hugsa eins.

 

Við viljum miðla hugsun um hófsemi frá Bifröst. Skólarnir geta lagt til góð orð og ráð því samfélag okkar má ekki verða samfélag hömluleysis og tillitsleysis. Engin þjóð, og alls ekki fámenn þjóð eins og við, lifum af slík viðhorf. Munum tímann sem nær okkur öllum. Martin Luther King sem var myrtur vegna hugsjóna sinna sagði eitt sinn:

 

„Það er alltaf tími til að gera hið rétta“.

 

Hugsið um þessi orð, kæru útskriftarnemar, á næstu áratugum, þessi skilaboð frá skólanum ykkar á Bifröst: „Það er alltaf tími til að gera hið rétta“.

 

 

Þakka ykkur fyrir og Guð blessi ykkur öll. Hátíðinni er slitið.

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri